25.2.2010 | 15:47
Leikjum við Fylki frestað!
Leikjum Víkings og Fylkis í Reykjavíkurmótinu hefur verið frestað um óákveðinn tíma. Þeir áttu að fara fram í Árbæ í kvöld (fimmtudag) en grasvöllur Fylkismanna er nú horfinn undir snjó og þar verður því ekki spilaður fótbolti alveg á næstunni.
Gunnar Örn boðar hins vegar til æfingar í Víkinni (inni) á morgun, föstudag, kl. 17:30. Þar taka menn á því í lyftingum og spretthlaupum til undirbúnings því að þjarma að Fylki, þótt síðar verði.
Og svo þetta: Meistaraflokkar Víkings og FH í fótbolta mætast í deildarbikarnum í Egilshöll kl. 19:15 í kvöld. Þetta er annar leikur beggja liða í keppninni og bæði sigruðu þá með sömu markatölu, 3-0!
Í kvöld er sem sagt boðið upp á toppslag og tilvalið fyrir þriðja flokkinn að mæta til að hvetja Víkinga til sigurs.
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.3.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar