18.5.2010 | 08:49
Íslandsmótið hefst í Keflavík á föstudaginn
Víkingar hefja Íslandsmótið í ár með leikjum gegn Keflvíkingum á heimavelli þeirra á föstudagskvöldið kemur, 21. maí. Leikur A-liðsins hefst kl. 18:00 en leikur B-liðsins kl 19:45.
Leikið verður í Íslandsmótinu þrjú næstu föstudagskvöld á þessum sama tíma.
Víkingar mæta Fylki í Víkinni í annarri umferð 28. maí, kvöldið áður en Jón Gnarr verður kjörinn borgarstjóri Fossvogsdal, Árbæ og nágrenni.
Í þriðju umferðinni er Stjarnan andstæðingurinn í Garðabæ og áfram verður svo haldið út í sumarið.
Leikið er í hverri viku þar til yfir lýkur. Í lokaumferðinni spila Víkingar við Fram í Safamýri 30. ágúst.
Sumarhlé í hálfan mánuð er tekið á milli leikja við Stjörnuna 27. júlí og Fjölni 12. ágúst.
- Bein tenging er við leikjaskrá og stigatöflu Íslandsmótins hér til vinstri á síðunni.
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.3.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar