11.6.2010 | 10:42
Með eitt stig heim úr Egilshöll
Uppskeran í leikjum gærkvöldsins við Fjölni var eitt stig af sex mögulegum. A-liðin gerðu jafntefli, 1-1, en Fjölnir sigraði, 2-0, í B-leiknum.
Markalaust var í hálfleik A-liðanna en Fjölnismenn komust yfir í síðari hálfleik og Viktor jafnaði fyrir Víking. Gunnar Örn þjálfari segir að út af fyrir sig megi una við jafntefli í leiknum. Víkingar hafi fengið ágæt færi í fyrri hálfleik og Fjölnir í þeim síðari en hvorugu liðinu hafi tekist að nýta sér þau. Víkingar hafi svo getað gert út um leikinn á lokamínútunum en gerðu það ekki.
B-leikurinn var Víkingum mun mótdrægari. Gunnar Örn segir að Víkingsliðið hafi varla átt almennilegt færi í leiknum en hins vegar þurft að verjast Fjölnismönnum, sem skoruðu eitt mark í hvorum hálfleik. Reynt hafi því verulega á vörnina og að Halldór markvörður hafi verið í miklu stuði og varið meðal annars vítaspyrnu.
Næstu mótherjar Víkings í Íslandsmótinu verða hinir hafnfirsku FH-ingar. Þeir koma í Fossvoginn á föstudaginn kemur, 18. júní, og mæta okkar mönnum í Víkinni.
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (14.3.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar