17.7.2010 | 15:40
Viktor Jóns markaskorari A-deildar
Viktor okkar Jóns er sem stendur markahæstur í A-deild þriðja flokks. Hann hefur skorað átta sinnum í sjö leikjum eða eitt mark í leik að meðaltali og rúmlega það. Á lista yfir 14 helstu markaskorara A-deildar er Davíð Örn í fjórða sæti með fimm mörk í sjö leikjum, Patrik í sjöunda sæti með fjögur mörk í sjö leikjum og Aron Elís í fjórtánda sæti með þrjú mörk í sjö leikjum, þar af eitt úr vítaspyrnu.
Blikar eru með fimm markaskorara af fjórtán efstu á listanum og Víkingar sem sagt með fjóra. Blikar hafa skorað flest mörk til þessa á mótinu, alls 25, Víkingar koma næst með 24 mörk en þeir hafa fengið á sig fæst mörk allra liða, alls 8.
Óli Ægir er næstmarkahæstur í B-riðli. Hann hefur skorað fjögur mörk í þremur leikjum, þar af eitt úr vítaspyrnu. Ólafur Andri er í fimmta sæti á listanum með þrjú mörk í átta leikjum og Óli Þór í sextánda sæti með tvö mörk í sex leikjum.
Blikar og Fjölnir hafa skorað flest mörk í B-riðli en Stjarnan og FH fengið fæst mörk á sig. Fjölnir á fjóra stráka á sextán manna lista yfir markahæstu menn, Blikar þrjá og Vikingar sömuleiðis þrjá.
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (14.3.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar