18.5.2008 | 18:44
C-liðið sigraði, B-liðið tapaði
B-liðið tapaði fyrir Fylki í lokaumferðinni í dag með einu marki gegn tveimur. Í leikhléi var markalaust en í síðari hálfleik komust Árbæingar yfir og bættu öðru við úr vítaspyrnu. Röggi lagaði stöðuna með marki og við það sat.
C-liðið lét Fylkismenn hins vegar ekki komast upp með múður og sigraði örugglega 1-4. Ólafur Andri skoraði í tvígang en hin tvö mörkin skoruðu Sigurður Daði og Steinar Ísleifsson.
Heildaruppskera Víkings í lokaumferðinni var því sex stig, níu mörk og Reykjavíkurmeistaratitill gegn þremur stigum og þremur mörkum Fylkis. Þetta var því Víkingsdagur á Fylkisvellinum!
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.3.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar