4.6.2008 | 07:54
Njarðvík fyrst á dagskrá A-liðsins
A-liðið mætir Njarðvík í fyrsta leik sínum í Íslandsmótsinu í Egilshöll kl. 17:00 á morgun, fimmtudag. Suðurnesjamennirnir mættu Aftureldingu í fyrstu umferð mótsins á dögunum og töpuðu stórt, fengu á sig sjö mörk Mosfellinga gegn engu. Okkar menn sátu hins vegar hjá í fyrstu umferð vegna norræna höfuðborgamótsins í Köben. Sá leikur, gegn Þrótti, er ekki kominn á dagskrá hjá KSÍ ef marka má mótstöfluna. Spánarferðafiðrings er farið að gæta hjá Víkingum en réttast er að þeir hafi samt hugann við leikinn og Njarðvíkinga á morgun en láti hann síðan að ósekju reika til iðavalla á Spáni. B-liðið á ekki næsta leik fyrr en gegn Breiðabliki 24. júní og getur vel leyft sér að vera annars hugar fram að brottför frá Keflavík. En lengur ekki.
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.3.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar