1.7.2008 | 09:06
Leikurinn á Ísafirði
Vesturfarar eiga að mæta á Reykjavíkurflugvöll kl. 7:15 í fyrramálið, miðvikudag 2. júlí, brottför til Ísafjarðar er kl. 7:45 og lending í Reykjavík við heimkomu er kl. 19:00 annað kvöld.
Athugið:
- Strákarnir eiga að hafa persónuskilríki í fórum sínum til innritunar í flugið: bankakort eða vegabréf.
- Strákarnir eða forráðamenn þeirra þurfa að hafa meðferðist 9.000 krónur í reiðufé til að snara út fyrir sínum hlut í fargjaldi og hádegismat fyrir vestan. Þeir hafi líka með sér nesti til að kroppa í yfir daginn.
Viggó þjálfari sendir nánari útlistun í tölvupósti.
Leikur Víkings og liðs Bolvíkinga/Ísfirðinga hefst kl. 15:00 og við stefnum að því að birta úrslit hér á síðunni um leið og þau liggja fyrir. Vestfirðingarnir hafa leikið fjórum sinnum í Íslandsmótinu, tapað þrisvar (fyrir Grindvíkingum, Mosfellingum úr Aftureldingu og Selfyssingum) og gert jafntefli við Leikni.
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.3.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar