15.2.2009 | 19:10
Sigur, jafntefli og tap í sunnudagsleikjum
B-liðið okkar sigraði Fylki með þremur mörkum gegn fjórum en leikur A-liða Víkings og Fylkis endaði með jafntefli, 1-1. Báðir leikirnir voru í Árbæ og voru þeir fyrstu í Reykjavíkurmótinu í ár. Hlynur skoraði mark A-liðsins en Róbert skoraði í tvígang fyrir B-liðið, Agnar Darri skoraði eitt og Ólafur Andri eitt.
Á ÍR-velli steinlá B2-lið Víkings með einu marki gegn níu og sigur ÍR-inga hefði þess vegna getað orðið enn stærri. ÍR komst í 2-0 og þá fengu Víkingar dæmda vítaspyrnu sem Sverrir Hjaltested skoraði úr. ÍR-ingar bættu svo við marki fyrir hlé en í síðari hálfleik brustu flestar flóðgáttir okkar megin og spurningin var einungis sú hvort heimamenn kæmust í tveggja stafa tölu áður en yfir lyki....
A-liðið á næsta leik á ÍR-velli á sunnudaginn kemur, 22. febrúar, kl. 13:00. B-liðið mætir ÍR þar á eftir, kl. 14:30. Á sama tíma, kl. 14:30, tekur KR á móti Víkingi B2 á heimavelli sínum. Nánar um leiki og stig á KSÍ-síðunni, sjá tengla hér fyrir neðan.
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.3.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar