29.8.2009 | 09:10
Sunnudagsleikirnir við Blika
Víkingar mæta Breiðabliki í lokaumferð Íslandsmótsins í ár á heimavelli Blika í Smáranum. Öll Víkingsliðin, A-, B- og C-, spila á morgun og menn eiga því ekki að taka mark á KSÍ-síðunni að þessu leyti og tímasetningar eru líka aðrar en segir þar. Það sem segir hér á eftir stendur!
A-leikur á Smárahvammsvelli sunnudaginn 30. ágúst. Mæting kl. 14:00, byrjað verður að spila kl. 15:00.
- Kári, Villi, Jón Bragi, Aron Bj, Rúnar, Patrik, Jón Reyr, Róbert, Davíð Örn, Óli Ægir, Viktor, Hrafnkell, Röggi, Agnar Darri, Einar og Hörður.
B-leikur á Smárahvammsvelli sunnudaginn 30. ágúst. Mæting kl. 15:15. byrjað verður að spila strax eftir A-leikinn, um það bil kl. 15:45.
- Halldór, Danni, Eyþór, Hlynur, Aron Elís, Sverrir, Leifur, Lárus, Arnar Sölvi, Konráð og Magnús.
C-leikur á Smárahvammsvelli sunnudaginn 30. ágúst. Mæting kl. 17:00, byrjað verður að spila eftir B-leikinn, um það bil kl. 17:30.
- Jón Dan, Óli Geir, Stefán, Aron Austmann, Siggi, Gulli, Egill, Óli Þór, Bjarki Þ, Þórarinn, Alexander og Tómas.
Eini möguleiki Víkings til að komast í úrslitakeppni Íslandsmótsins er í B-riðli. Leikur B-liðsins gegn Breiðabliki er því sérlega mikilvægur því með sigri gulltryggja Víkingar sig inn í úrslitakeppnina, eftir að Fjölnir tapaði stórt fyrir Breiðabliki, 1-7. Víkingar geta komist í 26 stig með sigri á Breiðabliki í B-leiknum en jafntefli getur samt dugað til að þeir komist í úrslitin.
Fjölnir er á nokkurri siglingu í þriðja flokki. Fjölnismenn eru þannig langefstir í C-riðli og eiga góða möguleika á að komast lika í úrslitakeppni A- og í úrslitakeppni B-liða ef allt fer á versta veg hjá Víkingum gegn Blikum....
Víkingar voru léttir í lundu og vígreifir á æfingu í Víkinni í gærkvöld og ætla sér að enda Íslandsmótið með stæl í leikjum A-, B- og C-liða gegn grænklæddum grönnum sínum úr Kópavogi í Smáranum á morgun. Eftir æfinguna grilluðu nokkrir foreldrar úr þriðja flokki pylsur og slegið var upp samverustund í Berserkjakjallaranum áður en hver hélt til síns heima. Það var tekið á því þegar soltin úlfahjörðin réðst að matborðinu, eins og sést á meðfylgjandi myndum....
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.3.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar