Færsluflokkur: Íþróttir
24.1.2009 | 18:53
ÍR-ingar lagðir í tvígang á heimavelli
Víkingar sigruðu ÍR-inga í báðum æfingaleikjunum sem stofnað var til á gervigrasvelli ÍR í dag. Leik A-liðanna lyktaði með einu marki heimamann gegn fjórum mörkum gestanna og B-leiknum lyktaði með tveimur mörkum gegn þremur. Víkingar voru lengi að komast...
23.1.2009 | 15:23
Leikir á ÍR-velli
Víkingar og ÍR-ingar eigast við á gervigrasi ÍR á morgun, laugardaginn 24. janúar. A-liðin byrja að spila kl. 13:00 og leikur B-liðanna hefst strax að þeim leik loknum. Nú er að taka á því, Víkingar!
20.1.2009 | 21:17
Fjáröflunarátak sveifað í gang
Fjáröflunarátak 3. flokks er hafið og látið nú hendur standa fram úr ermum að afla viðskipta til ágóða fyrir ykkur og flokkssjóðinn! Við þurfum að eiga eitthvað í sjóði, meðal annars til að standa straum af keppnisferðum eða öðru sem kallar á útgjöld á...
17.1.2009 | 11:49
Æfingin í dag
Æfingin í Egilshöll í dag, laugardaginn 17. janúar, er frá klukkan 14:30 til 16:30!
15.1.2009 | 09:29
Sigurvegarar í dósasöfnuninni!
Þriðji flokkur í knattspyrnu drengja var með yfirburðamætingu í dósasöfnun Víkings um síðustu helgi og vann til verðlauna! Barna- og unglingaráð félagsins hétu því að veita þeim viðurkenningu sem skiluðu sér best til starfa við að flokka og telja dósir...
29.12.2008 | 19:22
Gott gengi á jólamótinu - endurunnin frétt!
Víkingar stóðu sig umtalsvert betur á jólamóti Knattspyrnuráðs Reykjavíkur 29. desember en greint var frá hér á síðunni. Umsjónarmanni tókst að snúa við úrslitum í KR-leik B-liðsins og munar um minna ef fullyrt er að Víkingar hafi skíttapað fyrir KR 0-5...
28.12.2008 | 11:22
Liðin í Egilshöll 29. desember
Liðsskipan og mæting á jólamót KRR í Egilshöll mánudaginn 29. september : Hópur 1 mætir kl. 8:30 Kári, Ólafur Ægir, Aron, Róbert. Jón Bragi, Jón Reyr, Patrik. Óli Pétur, Aron Elís, (Kári lætur alla vita). Hópur 2 mætir kl. 8:30 Halldór, Ágúst,...
19.12.2008 | 18:22
Leiknisleiknum aflýst!
Leiknum við Leikni í Breiðholti er aflýst! Hann var á dagskrá á morgun, laugardaginn 20. desember, en fellur sem sagt niður. Síðasta æfing 3. flokks fyrir jól verður í Víkinni á venjulegum tíma á sunnudaginn kemur, 21. desember, og síðan tekur við...
16.12.2008 | 23:26
Leikið á Gróttuvelli og í Egilshöll
Framundan eru leikir þriðja flokks Gróttuvelli miðvikudaginn 17. desember og í Egilshöll fimmtudaginn 18. desember. Gunnar Örn þjálfari mælir svo fyrir um mætingu í því sambandi: Gróttuvöllur, miðvikudagur 17. desember, kl. 17:00 . Þangað mæti allir sem...
8.12.2008 | 16:51
Leiknisleiknum frestað!
Leiknum við leikni, sem var á dagskrá í kvöld, mánudag, hefur verið frestað um eina viku. Hann verður um sé á mánudaginn kemur, 15. desember. Strákarnir mæta í kvöld á reglubundna æfingu á HK-velli kl. 19:30.
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.8.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 2866
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar