Færsluflokkur: Íþróttir
14.11.2009 | 19:41
Haustmótsmeistarar!
Víkingar kræktu sér í meistaratitil A-liða þriðja flokks í haustmóti Knattspyrnuráðs Reykjavíkur með því að leggja Fjölni í úrslitaleik í Egilshöll. Okkar menn áttu meira í fyrri hálfleiknum og komust yfir á 28. mínútu þegar Fjölnir sendi boltann í net...
31.10.2009 | 17:24
Grunnskólameistarar 2009!
Réttarholtsskóli varð í dag grunnskólameistari í fótbolta eftir öruggan sigur á Árbæjarskóla í úrslitaleik í Egilshöll. Liðsmenn Réttó voru allir úr árgangi 1994 í Víkingi og voru sannarlega í sérflokki á grunnskólamótinu í dag. Þeir sigruðu í öllum...
29.10.2009 | 23:24
Sparktíðarlok við hátíðlega athöfn
Glatt var á hjalla í Víkinni í kvöld þegar 3. flokkur sparktíðarinnar 2009 efndi til síðbúins uppskerufagnaðar. Jafnfram skildu leiðir strákanna um sinn því þeir eldri, '93-árgangurinn, eru komnir upp í 2. flokk en '94-strákarnir eru orðnir eldra árið í...
29.10.2009 | 22:41
Aron Elís og Patrik á úrtaksæfingum U-17
Gunnar Guðmundsson, þjálfari U-17 ára landsliðsins í knattspyrnu, valdi Aron Elís og Patrik á úrtaksæfingar U-17 helgina 24.-25. október. Æft var í Egilshöll og Kórnum. Jafnframt var fundur með þjálfurum 3. flokks karla þar sem kynnt var starf...
31.8.2009 | 21:26
Fjölnir í úrslitakeppni B-liða
Fjölnir lagði Fylki 2-3 í hörkuleik í Árbænum í kvöld og komst þar með í úrslitakeppni Íslandsmótsins. Víkingar sitja því eftir með sárt ennið og geta víst engum um kennt nema sjálfum sér! Fylkisstrákar skoruðu fyrsta markið en Fjölnir jafnaði fyrir hlé...
30.8.2009 | 19:33
Uppskerubrestur í Kópavogi
Öll lið Víkings urðu að játa sig sigruð í viðureignum við Breiðabliksmenn á Smárahvammsvelli í dag. Bllikar höfðu undirtökin allan A-leikinn, skoruðu í tvígang í fyrri hálfleik og í tvígang í þeim síðari. Úrslitin því 4-0 og segir allt sem segja þarf um...
29.8.2009 | 09:10
Sunnudagsleikirnir við Blika
Víkingar mæta Breiðabliki í lokaumferð Íslandsmótsins í ár á heimavelli Blika í Smáranum. Öll Víkingsliðin, A-, B- og C-, spila á morgun og menn eiga því ekki að taka mark á KSÍ-síðunni að þessu leyti og tímasetningar eru líka aðrar en segir þar. Það sem...
27.8.2009 | 11:37
Óli Pétur í KR
Óli Pétur Friðþjófsson er hættur í Víkingi og mun vera á leið í KR. Brotthvarfið úr félaginu var staðfest með kveðju sem foreldrar stráka í 3. flokki fengu í dag frá Óla og fjölskyldu hans í tölvupósti. Þar eru engar ástæður tilgreindar fyrir...
23.8.2009 | 19:31
B-liðið hélt merkinu uppi gegn Þórsurum
Víkingsliðin áttu misjöfnu gengi að fagna gegn Akureyrar-Þór í leikjum dagsins í Íslandsmótinu. Eftir tíðindalítinn og markalausan fyrri hálfleik komst A-liðið yfir í síðari hálfleik. Róbert kom boltanum í netið úr þvögu framan við Þórsmarkið (aðdragandi...
23.8.2009 | 19:31
Veisla að loknum Þórsleikjum
Foreldrar úr þriðja flokki lögðu saman krafta sína, kökur og brauð og buðu upp á veitingar á hlaðborði að loknum leikjum dagsins við Þór frá Akureyri á Íslandsmótinu. Þetta tókst með ágætum og Akureyringar kvöddu mettir áður en þeir héldu norður. Okkar...
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.7.): 2
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 2865
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar