Færsluflokkur: Íþróttir
1.9.2008 | 15:27
Úrslitastundin nálgast - fyrsti leikur kl. 16:30, ekki 17:00!
Bæði A- og B-lið Víkings taka þátt í úrslitarimmu Íslandsmóts 4. flokks núna í september. B-liðið lagði Fjölni frækilega á föstudaginn var á útivelli 2-4 og hirti þar með efsta sætið í riðlinum af Þrótti. Önnur B-lið í úrslitum eru Fjölnir, KR og Þór á...
27.8.2008 | 22:45
Hafnarfjarðarbrandari í B-moll
B-liðið bjargaði andliti Víkings í leikjum dagsins við Hauka og það svo um munaði. Hafnfirðingarnir voru einu sæti ofan við Víkingana á stigatöflunni fyrir leik en þeir fóru heim úr Fossvoginum með 11 mörk á bakinu og þurftu að láta Víkingi eftir annað...
27.8.2008 | 22:40
Óli Ægir á öðrum fæti
Ólafur Ægir var fjarri góðu gamni í leiknum við Hauka, hoppandi um á öðrum fæti við hliðarlínuna með hækjur sér til halds og trausts. Hann hefur búið við bilað hné í sumar en látið sig hafa að spila hvern leikinn á fætur öðrum með tilheyrandi verkjum og...
23.8.2008 | 17:45
Komnir í úrslitakeppni Íslandsmótsins
A-liðið burstaði Víði/Reyni í dag með níu mörkum gegn engu og tryggði sér þar með annað sæti í riðlinum og rétt til að taka þátt í úrslitarimmu Íslandsmótsins í haust. Leikið var í slagveðursrigningu á Garðsvelli og aðstæður voru í samræmi við það. Engu...
20.8.2008 | 21:38
Stigalausir Leiknismenn og þjálfarinn með rautt spjald
Víkingar áttu góðar stundir á heimavelli sínum í Fossvogi í dag þegar Leiknismenn komu í heimsókn til að spila A- og B-leiki í Íslandsmótinu. Víkingsliðin skiluðu öllum stigum úr viðureignunum heim í hús og styrktu þannig stöðu sína í toppbaráttunni í...
15.8.2008 | 19:30
Mosfellingar teknir í kennslustund
Víkingsliðin rúlluðu yfir Aftureldingu í báðum leikjum Íslandsmótsins í dag. Úrslit A-leiksins urðu 1-7 en 1-9 í B-leiknum! Nú verður ekkert gefið eftir, bæði liðin ætla sér í úrslitakeppnina í haust. Fyrirfram var búist við jöfnum hörkuleik og fyrstu...
12.8.2008 | 22:18
Öruggur markasúpusigur í Grindavík
A-liðið sótti þrjú stig til Grindavíkur í dag og þurfti að hafa nokkuð fyrir þeim framan af. Leikið var á aðalkeppnisvelli bæjarins við bestu hugsanlegu aðstæður. Sjálfur völlurinn er skínandi góður og flottur, sólin skein og varla hreyfði vind. Aron...
11.8.2008 | 15:56
Leiknisleik frestað til 20. ágúst - Grindavík næst hjá A-liði
Næsta verkefni A-liðsins í Íslandsmótinu er leikur við Grindvíkinga á heimavelli þeirra á morgun, þriðjudaginn 12. ágúst, kl. 17:00. Skammt er stórra högga á milli því strax á föstudaginn kemur, 15. ágúst, eiga bæði liðin útileiki gegn Aftureldingu í...
27.7.2008 | 17:53
Nú lágu Danir í því
Víkingur 1 hirti bronsverðlaunin í A-liðum 4. flokks á ReyCup eftir að sigrað danska liðið Herfölge sannfærandi með tveimur mörkum gegn einu. Víkingur varð þar með efst íslenskra A-liða á mótinu í 4. flokki og kom í veg fyrir að útlend lið einokuðu...
26.7.2008 | 21:23
Vonandi kl. 12:00; alla vega Baunar
Hálsar góðir, það eru bullandi misvísandi upplýsingar nú síðla laugardalskvölds á heimasíðu ReyCup varðandi leikinn um bronsið í A-liðum. Það virðist samhljóða álit mótshaldara að leikurinn sé kl. 12 á hádegi við Suðurlandsbraut (ekki kl. 13:00 eins og...
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (5.8.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 18
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar