Færsluflokkur: Íþróttir
4.5.2010 | 22:50
Sigur í Gróttuleikjum
Víkingsliðin siguðru Gróttumenn verðskuldað í tveimur æfingaleikjum á Seltjarnarnesi í kvöld. Gróttumenn skoruðu eina mark fyrri hálfleiks A-liðanna en eftir hlé létu Víkingar af hæversku sinni og tóku gang mála í sínar hendar. Aron Elís skoraði í...
3.5.2010 | 15:52
Gróttuleikir festast um sólarhring!
Æfingjaleikjum við Gróttu hefur verið frestað í einn sólarhring í ljósi þess að Víkingar eiga margir hverjir að mæta í erfið próf í skólanum sínum í fyrramálið. Athugið líka að engin æfing verður í Víkinni í kvöld heldur er boðað allsherjar upplestrarfrí...
29.4.2010 | 23:56
Fjölnir með bæði A- og B-titla innan seilningar
Fjölnir er í þægilegri stöðu fyrir lokaleiki sína í Reykjavíkurmótinu í þriðja flokki gegn Þrótti á sunnudaginn kemur, 2. maí. Í A-riðli eru Víkingar og Fjölnismenn efstir og jafnir með 21 stig en Fjölnir á leik til góða og dugar jafntefli til að hreppa...
28.4.2010 | 22:54
Fram lenti í hakkavél í Víkinni
A-liðið rúllaði Frömmurum upp í lokaleik sínum í Reykjavíkurmótinu í kvöld með níu mörkum gegn engu og sú niðurstaða segir allt sem segja þarf. Staðan í hálfleik var 4-0. Viktor, Davíð Örn og Aron Elís skoruðu tvisvar hver en Róbert, Agnar Darri og...
27.4.2010 | 22:52
Leikurinn við Fram
A-liðið spilar við Fram í lokaleik sínum í Reykjavíkurmótinu í Víkinni á morgun, miðvikudaginn 28. apríl. Mæting kl. 18:30, leikurinn hefst kl. 19:30. Þeir sem ekki taka þátt í leiknum eiga að mæta til æfingar í Víkinni kl. 18:00 Í A-liðsleikinn mæti:...
26.4.2010 | 22:21
Upprisuleikur gegn Fylki í Víkinni
B-liðið gjörsigraði Fylki2 í lokaleik sínum í Reykjavíkurmótinu í Víkinni í kvöld með fimm mörkum gegn engu. Sá sigur var síst of stór. Víkingar voru óþekkjanlegt lið frá því á gervigrasinu við Egilshöll á föstudagskvöldið, börðust eins og ljón frá...
23.4.2010 | 23:12
Grafarþögn í Grafarvogi
Víkingsliðin fengu bæði afar kuldalegar móttökur hjá Fjölni í Grafavogi í kvöld og sáu aldrei til sólar í leikjum sínum, í orðsins fyllstu merkingu. A-liðið tapaði 0-3, staðan í leikhléi var 0-2. Fjölnismenn höfðu einfaldlega betri tök á leiknum og...
23.4.2010 | 09:34
Úrslit Reykjavíkurmótsins geta ráðist í Fjölnisleikjum kvöldsins!
Víkingsliðin geta í raun bæði gert út um Reykjavíkurmótið í leikjum sínum við Fjölni á gervigrasinu við Egilshöll í kvöld og það í næstsíðustu umferð mótsins. A-liðið er með fullt hús, 18 stig, eftir 6 leiki og í öðru sæti riðilsins er Fjölnir með 15...
21.4.2010 | 19:50
Stig í sarpinn á kostnað Fylkis og Þróttar
Víkingar bættu stigum í safnið sitt á Reykjavíkurmótinu í Árbæ í gærkvöld þegar A-liðið sigraði Fylki með þremur mörkum gegn engu og B-liðið deildi stigum með Fylki í jafnteflisleik, 2-2. Víkingar höfðu góð tök á A-leiknum og sigur þeirra hefði allt eins...
16.4.2010 | 17:49
Víkingur gegn Þrótti
Þróttarar eru næstu andstæðingar Víkings í Reykjavíkurmótinu á sunnudaginn kemur, 18. apríl. Leikirnir verða í Víkinni. A-liðið mætir kl. 11:45 og byrjar að spila kl. 13:00: Hlynur, Vilhjálmur, Hörður, Rögnvaldur, Sverrir, Ólafur Andri, Davíð Örn, Jón...
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.7.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar